Samskipti og almannatengsl í öryggiskrísum

Samskipti og almannatengsl í öryggiskrísum

Í streymi, , Reykjavík Kort

fim 19. nóv 2026 10:00

Bústaðu viðburðinn!

Þegar upplýsingaöryggisatvik og tengdar krísur koma upp vakna strax spurningar hjá starfsfólki, viðskiptavinum, hagaðilum og fjölmiðlum. Hvað hefur gerst, hverjir verða fyrir áhrifum og hvernig verður brugðist við? Mikið liggur við, sérstaklega þegar mikilvæg þjónusta við almenning er í húfi. Viðbrögðin geta ráðið miklu um framhaldið og traustið sem vinnustaðurinn nýtur.

Fjallað verður um fyrstu skrefin og framhaldið í samskiptum þegar upplýsingar eru enn ófullkomnar. Hver á að segja hvað, við hvern og hvenær? Hvernig sýnum við ábyrgð, gegnsæi og nærgætni án þess að lofa of miklu, fullyrða meira en við vitum eða stofna persónuvernd og öryggi í hættu?

Komið verður inn á hvernig við verndum vinnustaði og vörumerki og hvernig mögulegt er að endurbyggja traust og trúnað eftir krísur. Skoðað verður hvernig við hækkum byrðinginn og styrkjum áfallaþol vinnustaða gagnvart árásum og öryggisbrestum framtíðar.

Fundarstjóri

Jón Kristinn Ragnarsson

Framkvæmdastjóri ION Ráðgjafar, sem hjálpar fyrirtækjum og opinberum vinnustöðum að verja gögn sín með áhættumati, innri úttektum og innleiðingu stjórnkerfis upplýsingaöryggis.

Fyrirlesari

Stefán Hrafn Hagalín

Framkvæmdastjóri 1311, með yfirgripsmikla reynslu af almannatengslum og samskiptum hjá vinnustöðum á borð við OK, Advania, Odda, Landspítala, Auðkenni og HR.

Flytjendur