Samskipti fjölskyldunnar í jóla annríkinu

Samskipti fjölskyldunnar í jóla annríkinu

Hugarhlýja, Austurmörk 7, 810 Hveragerði Kort

mið 25. nóv 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Samskipti fjölskyldunnar í jólaannríkinu ❤️

Jólin eiga að vera tími samveru, hlýju og gleði. En stundum fylgja þeim líka væntingar, álag, misskilningur og tilfinningar sem geta haft áhrif á samskipti okkar við fólkið sem stendur okkur næst.

Theodór Francis Birgisson og hans heittelskaða Katrín Katrínardóttir koma í heimsókn í Hugarhlýju og halda áhugaverðan fyrirlestur um samskipti innan fjölskyldunnar í jólaannríkinu.

Hvernig getum við mætt ólíkum þörfum og væntingum? Hvernig getum við átt betri samskipti, sýnt hvert öðru skilning og skapað meiri ró þegar jólaannríkið stendur sem hæst?

Gefum okkur tíma til að hlúa að því sem skiptir mestu máli, samböndunum okkar.

Hugarhlýja Austurmörk 7 í Hveragerði

Skráning svava@tvaerstjornur.is

Verð 5900 greiðist við skráningu