Samhengi - Jónas Ásgeir Ásgeirsson
Tónlistardeild Listaháskóla Íslands, Skipholt 31, 105 Reykjavík Kort
fös 6. nóv 2026 12:15
Bústaðu viðburðinn!Fyrirlestrarröðin Samhengi býður harmóníkuleikarann Jónas Ásgeir Ásgeirsson velkominn föstudaginn 6. nóvember með erindinu Þróun nýrra verka fyrir klassíska harmóníku.
Á fáeinum áratugum hefur hin klassíska harmóníka skapað sér sess innan helstu tónlistarháskóla Evrópu og mörg fremstu tónskáld samtímans hafa samið verk fyrir hljóðfærið. Jónas Ásgeir mun fara yfir hina fjölbreyttu möguleika hljóðfærisins og ferli sitt í þróun nýrra verka í samstarfi við íslensk og erlend tónskáld.
Viðburðurinn er í Dynjanda, sal Tónlistardeildar, og er öllum opinn.