Samhengi - Howie B & Hiraki Sawa

Samhengi - Howie B & Hiraki Sawa

Tónlistardeild Listaháskóla Íslands, Skipholt 31, 105 Reykjavík Kort

fös 16. okt 2026 12:15

Bústaðu viðburðinn!

Fyrirlestrarröðin Samhengi býður tónlistarmanninum og upptökustjóranum Howie B og hljóð- og myndlistarmanninum Hiraki Sawa velkomna föstudaginn 16. október. Í tengslum við sýningu þeirra, 3 Sticks, í Gamla Bíó fjalla þeir um sköpunarferlið á bak við verkið.

Í fyrirlestrinum Invert the Pyramid skoða þeir hvernig hljóð, mynd og tækni hafa fléttast saman við þróun 3 Sticks. Með samtali, lifandi sýnikennslu, myndefni frá fyrri sýningum og kynningu á hluta af þeim hugbúnaði og verkfærum sem notuð voru við gerð verksins gefa þeir innsýn í samstarf sitt og hvernig hugmyndir þróast í gegnum tilraunir og yfir í lifandi flutning.

Viðburðurinn er öllum opinn.