Bandaríski rithöfundurinn Kris Bryant mun lesa úr verkum sínum fyrir gesti Borgarbókasafnsins Grófinni og ræða um sköpunar- og útgáfuferli verka sinna.
Kris Bryant er margverðlaunaður bandarískur rithöfundur sem hefur skrifað og gefið út tuttugu og þrjú saffísk skáldverk auk fjölda smásagna sem komið hafa út hjá Bold Strokes Books Publishing, stærstu sjálfstæðu LGBTQ+ bókaútgáfu Bandaríkjanna.
Kris Bryant hefur hlotið Goldie-verðlaun Golden Crown Literary Society fyrir bækurnar Listen, Temptation, Breakthrough, Cherish og Not Guilty. Hún hefur tvisvar komist í úrslit Foreword Indies-verðlaunanna og tvisvar í úrslit Lambda Literary-verðlaunanna. Skálsaga hennar Forget-Me-Not hefur einnig verið valin á „Over the Rainbow“-bókalista American Library Association.
Nánari upplýsingar veita:
Kris Bryant - krisbryantbooks@gmail.com
Þorgerður Agla Magnúsdóttir
Verkefnastjóri bókmennta og lestrarhvatningar | Borgarbókasafni
Thorgerdur.Agla.Magnusdottir@reykjavik.is | 411 6149
Rými fyrir höfunda
Þessi viðburður er hluti af Rými fyrir höfunda. Rithöfundar og skáld sem eru að gefa út bók og hafa áhuga á að standa fyrir kynningu á nýju verki og/eða eldri verkum sínum geta pantað rými á Borgarbókasafninu sér að kostnaðarlausu. Höfundum er frjálst að nýta rýmið eins og þeim hentar, til dæmis fyrir upplestur (jafnvel í samráði við aðra höfunda), útgáfuhóf og kynningar.
Hægt er að bóka rými með því að senda tölvupóst á thorgerdur.agla.magnusdottir@reykjavik.is
Saffískar bókmennir - Kris Bryant les úr verkum sínum
Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort
fös. 28.08.2026 17:00