Rými fyrir fjölskylduna

Rými fyrir fjölskylduna

Lífsgæðasetur St. Jó, Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður Kort

mið 25. nóv 2026 19:30

Bústaðu viðburðinn!

Rými fyrir fjölskylduna“ er verkefni Góðvildar sem ætlað er að styðja við foreldra og systkini langveikra og fatlaðra barna með fræðslu, samtali og tengslum við aðra í svipuðum aðstæðum. Fyrirhugað er að þróa verkefnið í samstarfi við Vinsemd undir leiðsögn Ínu Sigurðardóttur.

Verkefnið hefst með fræðslukvöldinu „Jólin á okkar forsendum“ þar sem fjallað verður um hvernig fjölskyldur geti dregið úr álagi og lagað jólahald að eigin þörfum.

Í framhaldinu verða haldin tvö námskeið, annað fyrir foreldra og hitt fyrir systkini.

Markmiðið er að styðja við líðan, draga úr einangrun, styrkja samskipti og gefa fjölskyldumeðlimum rými fyrir eigin reynslu og þarfir.

Um leiðbeinanda

Ína Sigurðardóttir rekur eigin þjónustu, Vinsemd, og hefur víðtæka reynslu af stuðningi við einstaklinga og fjölskyldur sem takast á við áföll, sorg og krefjandi aðstæður. Ína er grunnskólakennari (B.Ed.), með diplómu í sálgæslu á meistarastigi, réttindi-sáttamiðlara og stundar meistaranám í heilbrigðisvísindum með áherslu á geðheilbrigði og áföll. Þá var Ína framkvæmdastjóri Sorgarmiðstöðvar í sjö ár og hefur mikla reynslu af þróun stuðningsúrræða, gerð fræðsluefnis og því að leiða hópastarf fyrir börn og fullorðna.

Flytjendur