Rumours of Fleetwood Mac – 50th Anniversary Tour 2027
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
sun 5. sep 2027 20:00
50 ára afmæli hinnar sígildu plötu Rumours fagnað.
Platan flutt í heild sinni, nótu fyrir nótu, ásamt öllum stærstu smellunum
Rumours of Fleetwood Mac mun flytja þetta meistaraverk í heild sinni ásamt öllum bestu og vinsælustu lögum hljómsveitarinnar Fleetwood Mac í Eldborgarsal Hörpu sunnudaginn 5. september á næsta ári.
Rumours of Fleetwood Mac er án efa ein flottasta ,,tribute” hljómsveit heims í dag og með sérstökum stuðningi Mick Fleetwood hefur hljómsveitin spilað fyrir meira en tvær milljónir hljómleikagesta, með yfir 160 milljónir áhorfa á YouTube og alls staðar fengið fimm stjörnu dóma fyrir tónleika sína.
Meira að segja Jónas Sen gaf tónleikunum í Eldborg árið 2025 fimm stjörnur – og hafði þetta að segja um tónleikana:
Ef þú ert Fleetwood Mac-aðdáandi og færð tækifæri til að sjá Rumours of Fleetwood Mac, þá skaltu ekki hika. Þeir eru ekki bara tribute band – þeir eru tímahylki sem færir þig aftur til gullaldar rokksins.
Engu verður til sparað til að gera þetta að æðislegum tónleikum og það verður enginn Fleetwood Mac aðdáandi svikinn af þessum tónleikum.