Rímnafögnuður

Rímnafögnuður

Salurinn, Hamraborg 6, 200 Kópavogur Kort

þri. 15.09.2026 20:00

ISK 4900.00
Miðar / Skráning

Samtímarímur á Vöku

Á Degi rímnalagsins, 15. september, býður Vaka til árlegs rímnafagnaðar. Hér fá nýjar íslenskar rímur að hljóma í fyrsta sinn.

Kvæðamenn og kvæðakonur af yngri kynslóðinni flytja rímur sem samdar hafa verið sérstaklega fyrir þetta tilefni og sýna með því að rímnahefðin er lifandi listform í stöðugri þróun.

Fram koma Kristján Hrannar Pálsson, Ásta Sigríður Arnardóttir, Ragnheiður Gröndal, Emil Baur og Þorsteinn Björnsson. Kynnir er Rósa Þorsteinsdóttir

Kvöld þar sem nýjar raddir takast á við eitt elsta listform þjóðarinnar.

VAKA þjóðlistahátíð fer fram dagana 13.– 19. september 2026 í Kópavogi. Á hátíðinni mætast tónlist, dans, handverk, sagnalist og kveðskapur í fjölbreyttri dagskrá fyrir forvitna gesti á öllum aldri. VAKA leggur áherslu á að gera sem flestum kleift að sækja viðburði hátíðarinnar. Því eru í boði þrír mismunandi verðflokkar á flesta viðburði og velur hver gestur það verð sem hentar best. Tryggið ykkur hátíðarpassa sem veitir ykkur aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.

Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.

Flytjendur

  • Vaka þjóðlistahátíð
    Vaka þjóðlistahátíð

    Fagnar lifandi hefðum með fjölbreyttum viðburðum fyrir alla fjölskylduna.

  • Kristján Hrannar Pálsson
    Kristján Hrannar Pálsson

    Kristján Hrannar er organisti og tónskáld í Reykjavík.

  • Ásta Sigríður Arnardóttir
    Ásta Sigríður Arnardóttir

    Flytur aríur og dúett úr oratóríu Hasse.

  • RAGGA GRÖNDAL
    RAGGA GRÖNDAL

    Söngkona og jóga kennari

  • Vaka - Vökufélagið
    Vaka - Vökufélagið

    Vökufélagið stuðlar að virku samtali og samstarfi milli einstaklinga, félaga og stofnana á sviði þjóðlista á Íslandi, þ.e. tónlistar, handverks, kveðskapar, flutnings o.s.frv.

  • VAKA
    VAKA

    Vaka er sýning félaga í Myndlistarfélagi Akureyrar og gefur mynd af fjölbreyttu starfi myndlistarmanna. Sýningin er liður í að kynna félagið og félagsmenn þess.