Radd og söngvinnustofa með Arnmundi Bacman
Hugarhlýja, Austurmörk 7, 810 Hveragerði Kort
mán 7. des 2026 19:30
Bústaðu viðburðinn!Radd- og söngvinnustofa með Arnmundi Backman
Hugarhlýja, Hveragerði | Mánudagana 7. og 14. desember kl. 19:30
Vinnustofan er ætluð öllum sem vilja kynnast og skilja rödd sína betur, efla sjálfstraust sitt og öðlast meira frelsi – bæði í söng og tali.
Vinnustofan er byggð upp á eftirfarandi grunnþáttum:
• Raddvitund: Að átta sig á lykilþáttum raddbeitningar og skilja hvað verður til þess að rödd þreytist, læsist eða skorti styrk.
• Tækni og æfingar: Hagnýt tæknileg aðferðafræði og æfingar til að opna röddina og byggja upp styrk.
• Líkami og tilfinningar: Að varpa ljósi á samspil líkama, tilfinninga og raddar – og hvaða áhrif slökun og spenna hafa á raddbeitingu.
Unnið er með öndun, núvitundariðkun, raddæfingar og söng svo þátttakendur öðlist aukinn skilning á:
• Hverjar helstu fyrirstöður sterkrar raddar eru.
• Hvernig við tölum svo hlustað sé á okkur.
• Hvernig við ræktum heilbrigt og gott samband við eigin rödd.
Tímasetningar & Bókun:
• Hvenær: Mánudagana 7. og 14. desember kl. 19:30 - 21:00
• Hvar: Hugarhlýja, Hveragerði
• Verð: 19.900 kr. Greiðist við skráningu
Skráning fer fram hjá Svövu svava@tvaerstjornur.is