Púslhittingar

Púslhittingar

Borgarbókasafnið | Menningarhús Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 122, 113 Reykjavík Kort

fim 1. okt 2026 19:00

Bústaðu viðburðinn!

Ásamt Hinu íslenska púslsambandi ætlar Borgarbókasafnið í Úlfarsárdal að bjóða upp á púslhittinga á fimmtudagskvöldum.🧩

Hér er tilvalið að taka með sér púsl að heiman og eiga notalega stund í skemmtilegum hópi. Einnig verða nokkur púsl á staðnum fyrir þau sem eru að byrja. Þótt ekki verði púsl sérstaklega fyrir börn á staðnum, er fólki velkomið að taka með sér púsl fyrir börnin sín. Börn verða að vera í fylgd með forráðamönnum.

Púslhittingarnir eru einnig tilvalið tækifæri fyrir áhugasöm til að skiptast á púslum.

Notaleg stemning verður á safninu og kaffi og te í boði fyrir þau sem vilja.

Endilega lítið við!