Possession - Svartir Sunnudagar
Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Kort
sun 14. mar 2027 21:00
Svartir Sunnudagar kynna hrollvekjuna: Possession eftir Andrzej Zulawski frá 1981.
Ung hjón, Mark og Anna, eiga í hjónabandsörðugleikum. Mark grunar Önnu um að eiga í framhjáhaldi með öðrum manni, og upplifir furðulega hegðun og stórkostlega ógnvekjandi atburðarás sem gefur vísbendingar um það að um sé að ræða umfangsmeiri og skelfilegri yfirnátturulegt ástarsamband en hann grunaði í fyrstu.
Isabelle Adjani fékk leikverðlaunin í Cannes árið 1981 fyrir leik sinn í hlutverki Önnu, konu sem á í ástarsambandi við djöfullega veru í yfirgefnu húsi í Vestur-Berlín.
Sannkallaður költari á Svörtum Sunnudegi, 14. mars kl 21:00!