Perlað með Krafti og Aftureldingu

Perlað með Krafti og Aftureldingu

Hlégarður, Háholt 2, 270 Mosfellsbær Kort

þri. 25.08.2026 17:00

Í tilefni af Bæjarhátíð Mosfellbæjar leggur Kraftur leið sína í Mosfellsbæinn og perlar með Aftureldingu og Mosfellingum þriðjudaginn 25. ágúst frá kl. 17-19 í Hlégarði

Með því að taka þátt í viðburðinum eru þið að hjálpa okkur að standa við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum þess þar sem armböndin eru seld til styrkar félaginu.

Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.

Við hvetjum Mosfellinga sem og stuðningsmenn og leikmenn Aftureldingar að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Öll armböndin eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband. Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og er hægt að kaupa armböndin líka strax á staðnum.

Þetta er skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna og tilvalið tækifæri að láta gott af sér leiða og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni!

KOMIÐ OG PERLIÐ AF KRAFTI ♥

Flytjendur

  • Ungmennafélagið Afturelding
    Ungmennafélagið Afturelding
    Félagið stofnað 11. apríl 1909. Aðsetur þess er í íþróttamiðstöðinni að Vamá, Mosfellsbæ.
  • Kraftur
    Kraftur

    Félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur

  • Afturelding
    Afturelding

    Íþróttafélag sem verðlaunar íþróttafólk