Pandora - Geimsteinn 50 ára

Pandora - Geimsteinn 50 ára

Rokkheimur, Skólavegi 12, Keflavík

fös. 11.09.2026 21:00

ISK 5900.00
Miðar / Skráning
ISK 5900.00
Miðar / Skráning

Ein ástsælasta hljómsveit Langholtsins, PANDORA, kemur nú saman eftir langt hlé í tilefni af 50 ára afmæli elsta tónlistarútgáfufyrirtæki landsins – Upptökuheimilisins Geimsteins.

Pandorumenn eru jafn hissa og allir aðrir á hvernig tíminn hefur flogið framhjá en lofa þó að þeir hafa engu gleymt – en árin hinsvegar bætt í reynslubankann, aukið skilning og dýpkað tilfinningar – sem skilar sé í auknum gæðum flutningsins.

Þetta er ávísun á ógleymanlega kvöldstund, rússíbanareið um rangala minninganna, nostalgíutripp og tónlistarveisla!

Viðburðurinn er styrktur af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.

Flytjendur