Opnunarhátíð Hamraborg Festival 2026 | Opening Ceremony

Opnunarhátíð Hamraborg Festival 2026 | Opening Ceremony

Safnatúnið, Kort

fös. 28.08.2026 18:00

🌸Verið velkomin á Opnunarhátíð Hamraborgarhátíðar föstudaginn 28. ágúst kl 18:00 á túninu fyrir aftan Gerðarsafn / við menningarhúsin!

Föstudagurinn verður stappfullur af mögnuðum viðburðum, gjörningum, sýningum og tónleikum!

Klukkan 18:00 opnum við hátíðina formlega á Listatúni og færum okkur svo inn í Salinn. Benni Hemm Hemm og Páll Óskar koma fram ásamt Kvennakórnum Bliku.

Allar listasýningar hátíðarinnar verða opnar - á Bókasafni, Náttúrufræðistofu, Polo Vape Shop, Sportsól, Krónunni og fleiri stöðum víðsvegar um Hamraborg! Kviss búmm bang verður með langtímagjörning á Bókasafninu frá 17-19 og gjörningahópurinn Limit Getaway kynnir sinn fyrsta viðburð af þremur sem fram fara um helgina, sem hefst á Visitor ferðaskrifstofunni.

Gjörningakvöld, partý og dj sett í Gerðarsafni um kvöldið! Verk eftir Silfrúnu Unu Guðlaugsdóttur, Lindy Lin, Sæborg í MRI (Michael Richardt og Egill Ásdísarson), og Juulius Vaiksoo ásamt Helenu Tõrva.

Krónikan verður opin allt kvöldið! DJ ÓK kveikir svo í dansgólfinu að gjörningum loknum.

Komdu og fagnaðu með okkur!

Hamraborg Festival er árlegur, vikulangur fögnuður lista og samfélags í hjarta Kópavogs. Þetta árið er hátíðin haldin í sjötta sinn og stendur hún yfir dagana 28. ágúst - 4. september en þá kveðjum við sumarið með líflegri dagskrá sem er yfirfull af listasýningum, gjörningum, vinnusmiðjum, tónleikum og öðrum listviðburðum. Allir viðburðir hátíðarinnar eru ókeypis og öllum opnir. Hátíðin er byggð upp í nánu samstarfi við nærsamfélagið þar sem mörg verk bregðast við byggingarlist, sögu og hversdagslífi Hamraborgarsvæðisins. Hægt er að sjá ítarlega dagskrá á heimasíðunni okkar og sækja útprentað kort á sýningarstöðum yfir hátíðarvikuna.

Sjáumst í Hamraborg! 🌸🌸🌸

Hamraborg Festival er góðfúslega styrkt af: Kópavogsbæ, Myndlistarsjóði, Landsbankanum, Barnamenningarsjóði.

Flytjendur

  • Hamraborg Festival
    Hamraborg Festival

    Hamraborg Festival er lifandi listahátíð í hjarta Kópavogs.

    Hátíðin er haldin ár hvert í lok ágúst og markar þar með enda sumarsins með vikulöngum fögnuði listar og samfélagsins í Hamraborg.

  • Benni Hemm Hemm
    Benni Hemm Hemm

    Einstaklega sviðsframkoma, dansar á mörkum þess að vera band eða kór.

  • Páll Óskar
    Páll Óskar

    Gleðipinni og skemmtikrafur. Fullur orku og réttsýni.

  • Kvennakórinn Blika
    Kvennakórinn Blika

    Kvennakórinn Blika, Kópavogi

    Kórstjóri : Margrét Eir

    Formaður: Guðbjörg Eva Friðgeirsdóttir

  • DJ ÓK
    DJ ÓK

    A DJ known for creating a relaxing and vibey atmosphere.

  • MEKÓ - Menning í Kópavogi
    MEKÓ - Menning í Kópavogi
    MEKÓ færir ykkur öflugt og lifandi menningarlíf í Kópavogi.
  • Kópavogsbær
    Kópavogsbær

    Opinber Facebook-síða Kópavogsbæjar. Hér miðlar bærinn upplýsingum um þjónustu, stjórnsýslu, viðburði, mannlíf og annað sem við kemur Kópavogi.