Opnun | Lekir líkamar, sameigilegir heimar: Verk úr safni Bunkier Sztuki í Kraká

Opnun | Lekir líkamar, sameigilegir heimar: Verk úr safni Bunkier Sztuki í Kraká

Listasafn Reykjavíkur | Hafnarhús, Tryggvagata 17, 101 Reykjavík Kort

fim 8. okt 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Verið velkomin á opnun sýningarinnar í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi, fimmtudag 8. október kl. 20.00

Á sýningunni verða verk eingöngu úr safneign Bunkier Sztuki, sem geymir eitt öflugasta safn pólskrar samtímalistar í Evrópu. Sýnd verða ljósmyndaverk, málverk, skúlptúrar og innsetningar eftir þrjátíu listamenn frá Póllandi.

Sýningin dregur fram fjölbreytileika og kraft pólskrar samtímalistar og setur hana í alþjóðlegt samhengi. Verkin hafa ferðast frá Kraká til Reykjavíkur, þar sem þau eru sýnd í samfélagi sem að hluta hefur mótast af pólskri nærveru. Pólverjar eru stærsti hópur innflytjenda á Íslandi og hafa auðgað íslenska menningu og daglegt líf. Það er því þýðingarmikið að fá að nálgast þessi verk, sem eiga rætur sínar í pólsku lista- og menningarlífi, hér í Reykjavík. Sýningin skapar þannig vettvang fyrir samveru og samtal pólskrar menningar og íslensks samfélags.

Sýningarstjórar

Agnieszka Sachar, Aldís Snorradóttir