Opnaðu fyrir þinn innrikraft og gleði fyrir nýtt ár!
Hugarhlýja, Austurmörk 7, 810 Hveragerði Kort
fim 31. des 2026 11:00
Bústaðu viðburðinn!Langar þig að enda árið í magnaðri orku og undirbúa þig fyrir nýtt og spennandi ár?
Sjakradans og tónheilun er geggjuð leið til að kveðja hið gamla og opna fyrir nýtt og spennandi ár. Þetta er eitthvað sem þú vilt ekki missa af!
Við erum ofurspenntar fyrir að kveðja árið í mögnuðum Sjakradansi þar sem við dönsum í gegnum sjö stærstu orkustöðvar líkamans og opnum fyrir orkunni sem býr innra með okkur. Guðdómleg líkamsrækt sem gleður hjartað og fyllir líkamann af nýrri lífsorku og gleði.
Sonja Arnars - Vitund mun leiða dásamlega tónheilunarslökun með kristalskálunum sínum. Tónheilun hjálpar okkur að fara dýpra inn á við, ná enn dýpri slökun og betri tengingu við okkur sjálf.
Þú fyllist af krafti og orku þar sem þú tengist sjálfri þér betur og ert tilbúin að fagna nýju ári með nýjum tækifærum og áskorunum. Þetta verður því dásamlegur tími til að kveðja það gamla og opna fyrir nýja orku inn í nýtt ár!
Nánari upplýsingar:
Gamlársdagur 31. desember frá kl: 11-12:30
Viðburðurinn fer fram í sal Hugarhlýju Austurmörk 7. 810 Hveragerði
Verð: 5.000kr
Langar þig að kveðja árið með okkur?
Merktu við “ætla “ á sjálfan viðburðinn og sendu okkur svo skilaboð á messenger til að tryggja þér pláss.
Gott er að klæðast léttum fatnaði, berfætt eða í sokkum. Koma með vatnsbrúsa og stórt sjal ef þú átt.
Við erum ofurspenntar fyrir þessum magnaða tíma og hlökkum til að dansa með ykkur kæru konur inn í nýtt ár!
Við tökum hlýlega á móti þér!
Jóndís – Sjakradanskennari
Sonja Arnars – Vitund