Opið hús -skráning í ferðir 2027

Opið hús -skráning í ferðir 2027

Catalína, Hamraborg 11, 200 Kópavogur Kort

fim 26. nóv 2026 19:00

Bústaðu viðburðinn!

🎣 Veiðisumarið 2027 byrjar á Catalínu!

Fyrsta opna hús vetrarins hjá kvennanefnd SVFR er fram undan og við ætlum að byrja veturinn almennilega!

Við hittumst á Catalínu í Kópavogi, húsið opnar kl. 19:30. Þar kynnum við veiðiferðir kvennanefndarinnar fyrir 2027 og opnum fyrir skráningu.

Þær sem mæta fá fyrsta séns á að tryggja sér pláss áður en skráningin verður opnuð á Facebook-síðu kvennanefndarinnar.

Við fáum líka tvær hressar veiðikonur í heimsókn sem ætla að segja frá sínum upplifunum úr ferðum með kvennanefndinni. Góðar sögur, veiðispjall og smá innsýn í það sem gerir þessar ferðir svona skemmtilegar.

Og þú þarft alls ekki að vera hokin af veiðireynslu til að mæta. Ef þig langar í meiri veiði, skemmtilegan félagsskap og kannski að prófa eitthvað nýtt, þá er þetta kvöld fyrir þig.

Kíktu við, taktu vinkonu með og komdu veiðisumrinu 2027 af stað með okkur! 🎣✨