Óperudagar 2026: Portrait - Kurt Weill
Harpa | Norðurljós, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Kort
fös 30. okt 2026 20:15
Tvær magnaðar söngkonur, tólf manna hljómsveit og óviðjafnanlegur tónlistarheimur Kurts Weill mætast á stórtónleikum á Óperudögum 2026.
Í tilefni af afmælisári þýska tónskáldsins Kurts Weill tóku söngkonurnar Sigríður Thorlacius og Hildigunnur Einarsdóttir saman fjölbreytta tónleikadagskrá með sönglögum og sviðstónlist frá ólíkum tímabilum á ferli hans. Dagskráin var fyrst flutt á tónlistarhátíðinni Við Djúpið sumarið 2025 og snýr nú aftur á Óperudögum í Reykjavík.
Weill er eitt áhrifamesta og sérkennilegasta tónskáld 20. aldar – tónskáld sem samdi óperu-, leikhúss-, kabarett- jazz- og dægurtónlist. Tónlist hans getur verið seiðandi og fáguð á einu augnabliki, hrá, beitt og ögrandi því næsta. Frá iðandi kabarettheimi Berlínar millistríðsáranna til leikhúsa Parísar og Broadway í New York skapaði Weill tónlistarheim þar sem mörkin milli klassíkur og dægurtónlistar verða óljós.
Á Óperudögum stíga Sigríður og Hildigunnur á svið ásamt 12 manna hljómsveit og flytja tónlist Weills í nýjum útsetningum Þórðar Magnússonar. Útsetningarnar eru sérstaklega samdar fyrir söngkonurnar og hljómsveitina og skapa litríkan og kraftmikinn hljóðheim þar sem klassík og jazz mætast og tónlistin fær að njóta sín í allri sinni leikrænu breidd.
Verkin eru sungin á þýsku, ensku, frönsku og íslensku og endurspegla þann ótrúlega fjölbreytileika sem einkenndi feril Weills beggja vegna Atlantshafsins.
Sigríður Thorlacius og Hildigunnur Einarsdóttir eru tvær ástsælustu söngkonur landsins. Þær eru perluvinkour og hafa sérhæft sig hvor í sínum tónlistarstílnum, klassíkinni og dægurtónlistinni. Þær eiga það sameiginlegt að búa yfir einstakri nærveru á sviði og óviðjafnanlegri raddfegurð. Hér leiða þær saman ólíkar raddir sínar í verkum þar sem texti, persónur, ástríða og dramatík eru aldrei langt undan.
Flytjendur
Hildigunnur Einarsdóttir, söngkona
Sigríður Thorlacius, söngkona
Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðluleikari
Zbigniew Dubik, fiðluleikari
Emma Garðarsdóttir, fiðluleikari
Þórunn Ósk Marínósdóttir, víóluleikari
Fidel Atli Quintero Gasparsson, víóluleikari
Bryndís Halla Gylfadóttir, sellóleikari
Þórdís Gerður Jónsdóttir, sellóleikari
Hávarður Tryggvason, kontrabassaleikari
Grímur Helgason, klarinettuleikari
Liam Kaplan, píanóleikari
Margrét Arnardóttir, harmonikkuleikari
Steef van Oosterhout, slagverksleikari