Open House Surgery: Gjörningur eftir Dafna Maimon
Norræna húsið, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Kort
fim 8. okt 2026 18:45
Open House Surgery – a tour through, an open –– a walk through, a building, a… a supposedly simple orientation from room to room. But, as Werner Herzog said about psychoanalysis; the building becomes unliveable when its every corner is illuminated by harsh light, likewise, the building becomes deliciously alive when a body allows itself to really be absorbed by said building –to take over its sensorial faculties, hijack its nervous, limbic, endocrine, fluid, skeletal, and organ– yes, every system. Whose? The bodies’ or the buildings’? This happens every day, to some degree, but to which? Maybe the golden angle – about 137.5°– supposedly also found in the human heart, according to some, but not all, opinions. Or how, according to one man, the infant takes its mother, its lover, its caretaker, all of the above, to be a part of itself. For a moment; a mirror, no boundaries, a shared biology. Architecture is biology, Aalto said. Aalto means wave, one that flooded his homeland with style. But, inside a wall is faced, stripped, licked, and punched. A floor repeatedly pounced; a chair, interrogated… yes, exactly, not the other way around like in Gestalt therapy, or maybe that’s a dialogue, or is it a monologue? Speaking alone to oneself, speaking, small and isolated, speaking, nonetheless, hoping to be heard.
– –
Athugið að gjörningurinn verður aðeins fluttur í þrjú skipti þann 8 október.
Sýningartímar eru: 17.30-18.30 / 18.45-19.45 / 20.00-21.00
Ókeypis er á gjörninginn en nauðsynlegt að panta miða í gegnum Tix. Athugið að ekki verður hleypt inn í húsið eftir að gjörningur hefst og er því nauðsynlegt að mæta tímanlega.
AÐGENGI: Ef þú hefur einhverjar aðgengisþarfir eða -óskir, vinsamlegast láttu okkur vita með því að senda tölvupóst á kolbrun(at)nordichouse.is. Það gæti til dæmis átt við aðgengi fyrir hjólastól, möguleika á að sitja meðan á gjörningnum stendur eða aðra aðstoð sem gæti auðveldað þér að taka þátt í viðburðinum.
– –
Open House Surgeryer gjörningur eftirDöfnu Maimonsem er hluti af sýningunniAð holdgera byggingu sem sýnd er í Norræna húsinu í Reykjavík. Gjörningurinn fer fram í byggingu sem hönnuð var af Alvar Aalto og umbreytir hefðbundinni leiðsögn, sem alla jafna felst í miðlun á áreiðanlegum staðreyndum um kanóníska byggingarlist, í rannsókn á mannlegri hugsun og tilfinningum. Áherslan færist frá „skynsamlegri“ kynningu á hönnuðu rými yfir í að afhjúpa lifaða og skynjaða reynslu líkama og hugar í rauntíma. Allt frá því að snerta hurðarhún til tilvistarkreppu kryfurOpen House Surgerysambandið milli líkama, hugar og umhverfis og umbreytir því í síbreytilegt og óútreiknanlegt tónverk um líffræðilega sjálfsskoðun.
Gjörningurinn tekur um það bil 60 mínútur og kemur listamaðurinn þar fram ásamt langvarandi samstarfsaðilum sínum, dansaranum Leah Katz og söngkonunni Jessica Gadani.
Verkið byggir á líkamlegri og spunakenndri aðferð sem listamaðurinn hefur þróað og nefnist Authentic Stream of Consciousness Singing (ASOCS), eða „Einlægur söngur meðvitundarflæðis“. ASOCS gerir flytjendum kleift að tjá með röddinni innri skynjanir, hugsanir og tilfinningar í rauntíma og umbreyta þannig sjálfsprottinni tjáningu í persónulegt, fyndið og tilfinningaþrungið hljóðlandslag.
GjörningurinnOpen House Surgeryer hluti af áframhaldandi röð verka sem eiga sér stað í byggingum finnska arkitektsins Alvar Aalto. Verkin sækja í hugmyndir hans um arkitektúr sem lifandi lífveru, þar sem líkami, umhverfi, náttúra og sálarlíf sameinast. Fyrir listamanninn, sem ólst upp í Finnlandi í fjölskyldu innflytjenda, skapa byggingar Aalto jafnframt vettvang til að rannsaka sjálfsmynd, tilfinninguna um að tilheyra og hvað það þýðir að vera „inni“.
Með styrk frá Amos Andersons Fond og Svenska kulturfonden.