Óhefðbundnar upplifanir

Óhefðbundnar upplifanir

Kvikmyndaskóli Íslands, Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík Kort

sun 4. okt 2026 14:30

Bústaðu viðburðinn!

Verið velkomin á gæðastund með myndlist og upplestri í húsnæði Geðhjálpar að Suðurlandsbraut 18, þriðju hæð. Hús opnar klukkan 14:30 og upplestur hefst klukkan 15:00. Dagskrá: • Upplestur á smásögunni Ótrúverðug

• Að skrifa glæpakomedíu um manneskju sem sér sýnir Þessi viðburður sem Geðhjálp tekur þátt í ásamt hópi listamanna er hluti af alþjóðlegu verkefni sem ber heitið "the Voices and Arts 2026/Global Voices Art Act", en verkefnið er stutt af Intervoice. Um er að ræða herferð þar sem fólk sem á eða hefur átt óhefðbundnar upplifanir er hvatt til að tjá reynslu sína í gegnum einhvers konar listform, t.d. málverk, ljóðlist, ljósmyndun, myndband, skriftir, framkoma, og svo margt fleira. Listin þarf að vera sköpuð af fólki með persónulega reynslu af því að heyra raddir, sjá sýnir eða aðrar óhefðbundnar upplifanir, en notkun gervigreindar er ekki leyfileg. Markmiðið með verkefninu er að deila og viðurkenna upplifanir okkar, og tengjast öðru fólki, hópum og samfélögum um ólíka hluta heimsins.