North Atlantic Brass á Ísafirði

North Atlantic Brass á Ísafirði

Hamrar, Austurvegur 11, 400 Ísafjörður Kort

fim 26. nóv 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Tónleikar með North Atlantic Brass, 26. nóvember í Hömrum

North Atlantic Brass - Tónleikar í Hömrum á Ísafirði

Þann 26. nóvember heldur North Atlantic Brass, alþjóðlega verðlaunaður málmblásarakvintett, tónleika í Hömrum á Ísafirði.

Kvintettinn er skipaður fimm ungum og metnaðarfullum tónlistarmönnum frá Íslandi, Danmörku og Noregi sem hafa vakið athygli fyrir kraftmikinn flutning, samspil og fjölbreytta efnisskrá. Meðlimir hópsins leika reglulega með nokkrum af fremstu sinfóníuhljómsveitum Norðurlandanna.

Á tónleikunum verður boðið upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá þar sem íslensk og norræn þjóðlög, djass, klassísk tónlist og jólalög fá að hljóma. Hér ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi!

Við hlökkum til að sjá ykkur í Hömrum!