Nornin í eldhúsinu - Útgáfuhóf!

Nornin í eldhúsinu - Útgáfuhóf!

Forlagið útgáfa, Fiskislóð 39, 101 Reykjavík Kort

mið 18. nóv 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

Í tilefni útgáfu bókarinnar Nornin í eldhúsinu eftir Tómas Zoëga, með myndum Sólrúnar Ylfu Ingimarsdóttur, verður blásið til útgáfuhófs í Bókabúð Forlagsins miðvikudaginn 18. nóvember kl. 17:00.

Tómas les upp og þau Sólrún Ylfa árita bækur, léttar veitingar verða í boði og bókin á sérstöku útgáfutilboði. Ungir lesendur eru sérstaklega velkomnir!

Um bókina

Einn niðdimman desembermorgun, þegar Pétur er nýbúinn að sannfæra pabba um að hann geti labbað sjálfur í skólann, birtast tvær glitrandi glyrnur í myrkrinu. Þessar glyrnur verða upphafið að skrítnum og skemmtilegum aðventuævintýrum þeirra Péturs og vinkonu hans Stefaníu, risahundsins Lubba og dálítið geðstirðrar nornar sem býr í furðulegasta kofa sem hugsast getur.

Við hlökkum til að sjá ykkur!