Pappapiparkökuhúsasmiðja og upplestur fyrir hressa krakka í jólastuði! Í þessari smiðju verða byggð piparkökuhús með endurnýttum pappa. Tómas og Sólrún Ylfa, höfundar bókanna um Pétur og Stefaníu sjá um smiðjuna og lesa upp úr nýútkominni bók sinni: Norninni í eldhúsinu.
Finndu pappa sem er brúnn á bakhliðinni, til dæmis morgunkornskassa eða appelsínusafafernu úr eldhúsinu heima og taktu með þér í smiðjuna. Svo kennum við þér að byggja þitt eigið pappapiparkökuhús!
Nornin í eldhúsinu - Pappapikarkökuhúsasmiðja
Borgarbókasafnið | Menningarhús Árbæ, Hraunbær 119, 110 Reykjavík Kort
sun 6. des 2026 13:00
Bústaðu viðburðinn!Smiðjan hentar 6 ára og eldri (eða þeim sem kunna að nota skæri, en auðvitað mega yngri þátttakendur vera með og fá aðstoð foreldra t.d.).
Öll velkomin!
Nánari upplýsingar: Oddur Ingi Þórsson Hulduson, sérfræðingur
oddur.ingi.thorsson@reykjavik.is
Öll velkomin!
Nánari upplýsingar: Oddur Ingi Þórsson Hulduson, sérfræðingur
oddur.ingi.thorsson@reykjavik.is