Niðurskurður og dauði. Áfallasaga: Útgáfuhóf

Niðurskurður og dauði. Áfallasaga: Útgáfuhóf

Bókakaffið Ármúla 42, Ármúli 42, 108 Reykjavík Kort

mið 18. nóv 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

Verið velkomin að fagna með dr. Helga Sigurðssyni, dýralækni og sagnfræðingi, útgáfu verksins Niðurskurður og dauði. Um efni verksins: Í aldanna rás var sauðfjárbúskapur undirstaða íslensks samfélags og mótaði líf og afkomu þjóðarinnar. En búskapnum fylgdu áföll, svo sem eldgos og harðindi en ekki síst skæðir sauðfjársjúkdómar sem gátu á skömmum tíma ógnað afkomu heilu byggðarlaganna. Í bókinni fjallar dr. Helgi um þessi áföll, allt frá fjárkláðanum fyrri og Móðuharðindunum til bráðapestarinnar, sunnlenska fjárkláðans, karakúlsjúkdómanna og glímunnar við riðuveiki. Niðurstöður dr. Helga sæta tíðindum. Hann færir meðal annars rök fyrir því að fyrri fjárkláðinn hafi verið veirusjúkdómur en sunnlenski fjárkláðinn bakteríusjúkdómur og að hæggengur veirusjúkdómur hafi valdið mæðiveikinni.

Flytjendur