Netmálþing um innflutning frá Indlandi

Netmálþing um innflutning frá Indlandi

Í streymi, , Reykjavík Kort

þri 17. nóv 2026 09:00

Bústaðu viðburðinn!

Íslensk-indverska viðskiptaráðið, Sendiráð Indlands og Félag atvinnurekenda efna til netmálþings á Teams kl. 9 - 10.30 þriðjudaginn 17. nóvember, um tækifæri í innflutningi ýmissa vara frá Indlandi.

Tollar hafa lækkað á ýmsum matvörum og blómum eftir að viðskipta- og efnahagssamstarfssamningur EFTA og Indlands (TEPA) tók gildi á síðasta ári. Indversk iðnaðarframleiðsla er í hraðri þróun og hægt er að gera mjög hagkvæm innkaup á ýmsum gæðavörum. Sérstaklega verður fjallað um mat- og drykkjarvörur og tengdar afurðir, textílvörur og fatnað og húsbúnað og hönnunarvörur.

Málþingið fer fram á ensku og er dagskráin hér að neðan. Hægt er að skrá sig á fundinn á vef Íslensk-indverska viðskiptaráðsins, sjá hlekk hér í viðburðinum. Þátttakendur fá sendan hlekk til þátttöku með góðum fyrirvara.