Mósaík hekl buddur á Siglufirði

Mósaík hekl buddur á Siglufirði

Segull 67 Brewery, Vetrarbraut 8-10, 580 Siglufjörður Kort

lau 21. nóv 2026 13:00

Bústaðu viðburðinn!

Langar þig til að læra að hekla buddur með mósaíkmunstur? Ég skal kenna þér það! Þetta eru geggjaðar jólagjafir.

Á námskeiðinu er kenndur grunntæknin í mósaíkmunstur hekli og hvernig má nota þessa tækni við að gera fallegar buddur. Þá byrjið þið á buddunni ykkar á námskeiðinu og allir ættu að komast vel á veg með hana svo þið getið auðveldlega klárað hana heima. Þá má einnig nota sömu uppskrift og tækni til að hekla mósaík púða.

Athugið að Námskeiðið er ætlað þeim sem kunna aðeins að hekla og henta því ekki algjörum byrjendum, þá er nóg að kunna bara grunninn: loftlykkjur, fastalykkjur og stuðla.

Ég heiti Tinna Þórudóttir Þorvaldar og er kennarinn. Ég hef heklað og stundað hannyrðir síðan ég man eftir mér, gefið út 3 heklbækur, þær Þóru, Maríu og Havana, og ritstýrt þeirri fjórðu, Heklfélaginu. Ég er þaulreynd í heklkennslu, hef haldið heklnámskeið sl. 15 ár og kennt mörg hundruðum nemenda handtökin.

Námskeiðið stendur í tvo tíma, frá kl. 13-15, laugardaginn 21. nóvember , og fer fram á Segli Brugghúsi á Siglufirði í samstarfi við vinkonur mínar í Systraböndum.

Hámarks fjöldi þátttakenda 12.

Þið þurfið að koma með:

6-10 cm langan rennilás (alls ekki stærri svo allir komist vel á veg með budduna sína á námskeiðinu!)

Saumnál með beittum oddi sem hentar garni

Heklunálar nr 2,5 og 3

bómullar garn sem hæfir nál 3 minnst 2 liti og best að hafa mikinn contrast í litunum. Það er hægt að nota hvaða garn sem er, bara einhverja afganga, en það fer minna en ein 50 G dokka alls í eina buddu í þessari stærð.

Námskeiðið kostar 9.500 kr. og auk kennslu fáið þið uppskriftina að Mósaík Buddunum á rafrænu formi. Plús aðra uppskrift frá mér að eigin vali í lok námskeiðis. ATH. ad þið þurfið að prenta buddu uppskriftina út sjálf, ef þið viljið hafa hana á pappír, eða koma med hana í síma eda spjaldtölvu eftir hentugleika.

Skráning og allar frekari upplýsingar hjá Tinnu á netfangið tinnahekl@gmail.com

Vinsamlegast hafið í huga að það er ekki nóg að merkja við mætingu hér í viðburðinum til að skrá sig. Greiða þarf fullt námskeiðisgjald við skráningu til að staðfesta þáttöku. ATHUGID að endurgreiðsla er ekki í bodi ef kemur til forfalla af hálfu nemenda, en ykkur er þá velkomid að gefa einhverjum ödrum (vini eda ættingja til dæmis!) plássid ykkar ef þið viljið.

Ég hlakka til að sjá ykkur í heklinu fyrir norðan!