Morgunstund
REYR Studio, Fiskislóð 31, 101 Reykjavík Kort
fös 4. des 2026 08:10
Morgunstund í REYR Studio
3 vikna námskeið | Mánudaga og föstudaga kl. 08:10–09:00
Morgunstund í REYR er örnámskeið sem hjálpar þér að öðlast aukna hreyfigetu, betri líkamsvitund, heilbrigðari líkamstöðu (posture) og að losa um spennu og stífleika svo þú megir öðlast vellíðan í eigin líkama.
Með styrkjaræfingum sem miðast við eigin líkamsþyngd, gólfæfingum og teygjum sem mynda styrk og teygjanleika, byggjum við grunn að sterkri, heilbrigðri líkamsstöðu og vinnum gegn verkjum og stífleika. Iðkuninni er fléttað saman við núvitund og hugleiðslu sem styður okkur í að mæta áskorunum dagsins af yfirvegun, hlýju og tilfinningalegu jafnvægi.
Góðir morgunávanir er undirstaðan að góðum degi. Með því að hefja daginn á markvissri iðkun leggjum við línurnar að litlum breytingum og með tímanum fara áhrif þessara litlu en öflugu ávana að gæta í öllu lífinu. Námskeiðið hentar öllum sem vilja dýpka tengsl huga og líkama, leggja grunn að langlífi og mæta hverjum degi af opnum hug og hjarta.
Kennari námskeiðsins er Arnmundur Backman, leikari og listamaður. Arnmundur sækir grunn sinn úr bardagalistum, yoga og dansi. Hann hefur kennt dönsurum og leikurum við Listaháskóla Íslands ásamt því að hafa starfað sem kennari hjá Primal Iceland. Í sinni kennslu leggur hann áherslu á heildræna nálgun andlegrar og líkamlegrar iðkunnar sem stuðlar að langlífi, aukinni hreyfigetu og verkjaleysi.
Þriggja vikna námskeið kennt mánudaga og föstudaga kl. 08:10–09:00 | Hefst 4. Desember | Verð: 16.900 kr.
Frekari fyrirspurnir má senda á likaminnsemlykill@gmail.com