Morgunstund
REYR Studio, Fiskislóð 31, 101 Reykjavík Kort
mán 23. nóv 2026 08:10
Morgunstund í REYR Studio
3 vikna námskeið | Mánudaga og föstudaga kl. 08:10–09:00
Námskeiðið er hannað til að auka hreyfigetu, efla líkamsvitund og leysa spennu og stífleika svo þú megir öðlast vellíðan í eigin líkama.
Með styrkjaræfingum sem miðast við eigin líkamsþyngd, gólfæfingum og teygjum sem mynda styrk og teygjanleika, byggjum við grunn að heilbrigðri líkamsstöðu og vinnum gegn verkjum og stífleika. Iðkuninni er fléttað saman við núvitund og hugleiðslu sem hjálpar að greina á milli hugsana og sjálfsins, og mæta áskorunum dagsins af yfirvegun, hlýju og tilfinningalegu jafnvægi.
Góðir morgunávanir er undirstaðan að betra lífi. Með því að hefja daginn á markvissri iðkun leggjum við línurnar fyrir daginn og með tímanum fara áhrif þessara litlu en öflugu ávana að gæta í öllu lífinu. Námskeiðið hentar öllum sem vilja dýpka tengsl huga og líkama, leggja grunn að langlífi og mæta hverjum degi af opnum hug og hjarta.
Kennari námskeiðsins er Arnmundur Backman, leikari og listamaður. Arnmundur sækir grunn sinn úr bardagalistum, yoga og dansi. Hann hefur kennt dönsurum og leikurum við Listaháskóla Íslands ásamt því að hafa starfað sem kennari hjá Primal Iceland. Í sinni kennslu leggur hann áherslu á heildræna nálgun andlegrar og líkamlegrar iðkunnar sem stuðlar að langlífi, aukinni hreyfigetu og verkjaleysi.
Þriggja vikna námskeið kennt mánudaga og föstudaga kl. 08:10–09:00 | Hefst 23. nóvember | Verð: 16.900 kr.
Frekari fyrirspurnir má senda á likaminnsemlykill@gmail.com