Missir, sorgin og ástin

Missir, sorgin og ástin

Lífsgæðasetur St. Jó, Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður Kort

þri 10. nóv 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

Í þessu erindi segir Sigurjón Þórðarson frá því þegar lífið breyttist algjörlega, þegar hann missti Hrafnhildi, eiginkonu sína og lífsförunaut til 39 ára úr krabbameini. Hann talar um sorgina sem byrjaði löngu áður en hún dó, um tómleikann sem fylgdi missinum og um það hvernig hann reynir að finna fótfestu í nýju lífi sem hann valdi ekki.

Sigurjón deilir því sem hjálpaði honum, bjargráð, sorgarhópurinn, fjölskyldan, vinirnir, jákvæð sálfræði, og litlu augnablikin sem halda minningunni lifandi. Hann talar um ástina sem er enn til staðar, og hvernig sorgin er í raun bara hlið á ástinni, ef maður þorir að elska þá er gjaldið við missi, sorg.

Þetta er erindi um missi, mannlega viðkvæmni, húmor, hlýju og það að læra að lifa áfram með sorginni, ekki gegn henni og svo auðvitað um ástina.

🗣 UM SIGURJÓN

Sigurjón er mannauðssérfræðingur, leiðtogaþjálfi og kennari með bakgrunn í jákvæðri sálfræði, stjórnun og teymisvinnu. Hann hefur starfað lengi með fólki og tilfinningum í mannauðsmálum, ráðgjöf og kennslu.

Að undanförnu hefur hann einnig talað opinskátt um eigin sorgarferðalag eftir að eiginkona hans lést, og tengir þar faglega þekkingu við persónulega reynslu. Sigurjón er jafningi og hópstjóri hjá Sorgarmiðstöðinni og er varaformaður stjórnar Sorgarmiðstöðvar. Hann hefur unnið með fólki í erfiðum tilfinningum, breytingum og enduruppbyggingu. Þá sat hann í stjórn Alzheimersamtakanna til nokkurra ára.

Hann talar um missi, sorg og ást af einlægni, reynslu og djúpri mannlegri innsýn.

👥 FYRIR HVERJA

Einungis fyrir aðstandendur/fagfólk og aðra sem hafa áhuga á málefninu. Fyrirlesturinn er ekki ætlaður einstaklingum með heilabilun.

Engin skráning nauðsynleg.

⏰ HVENÆR

Þriðjudaginn 10. nóvember kl. 17:00

🏠 HVAR

Fyrirlesturinn verður haldinn í húsnæði samtakanna í St. Jó í Hafnarfirði á 3. hæð. Athugið að það eru fleiri bílastæði við húsið Hringbrautarmegin.

📹 UPPTAKA

Fyrirlesturinn verður tekinn upp og settur á vefinn okkar daginn eftir.