Minningartónleikar - Gulli og Halli Reynis

Minningartónleikar - Gulli og Halli Reynis

Café Rosenberg, Tryggvagata 22, 101 Reykjavík Kort

þri 1. des 2026 20:30

Bústaðu viðburðinn!

Minningartónleikar í tilefni þess að Gulli og Halli Reynis hefðu orðið sextugir 1. desember 2026

Í tilefni þess að 1. desember næstkomandi hefðu tvíburabræðurnir Gulli og Halli Reynis orðið sextugir, ætlum við fjölskyldan að heiðra minningu þeirra bræðra með tónleikum þar sem nokkur af lögum Halla verða flutt af einvala liði tónlistarmanna. Halli samdi ógrynni af lögum og textum og eftir fráfall hans hélt Gulli tónlistinni hans á lofti með tónleikahaldi og plötuútgáfu. Halli spilaði í mörg ár reglulega á Fógetanum og á Café Rósenberg. Hann hélt oft tónleika á afmælisdaginn og m.a. hélt hann tónleika á fertugsafmælinu sínu á Café Rósenberg þegar staðurinn var í Lækjargötu. Café Rósenberg hefur nú nýverið opnað á nýjum stað (Tryggvagötu 22) og er það mjög við hæfi að lögin hans Halla fái að hljóma þar a.m.k. einu sinni enn.