Menntun og móttaka leikskólabarna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn

Menntun og móttaka leikskólabarna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn

fim 3. des 2026 09:00

Skráning hér:

https://forms.cloud.microsoft/e/PK6NT80HH3

Hvernig getum við stutt við mál og læsi í námi og leik fjöltyngdra barna í leikskólastarfi?

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og Miðja máls og læsis hjá Reykjavíkurborg bjóða upp á námskeið fyrir leikskólakennara og annað starfsfólk leikskóla sem vinnur með fjöltyngdum börnum eða vill efla sig á því sviði.

Námskeiðið er tækifæri til að bæta í verkfærakistuna, rifja upp þekkingu, læra af öðrum og tengjast starfsfólki annarra leikskóla.

Hvað verður fjallað um?

Námskeiðið er blanda af kynningum og verklegum æfingum. Sérstök áhersla verður lögð á:

Mál og læsi fjöltyngdra barna

Móttökuáætlanir

Málumhverfi og málstefnur

Inngildandi starfshætti með börnum og fjölskyldum þeirra

Skráningar

Við hvetjum áhugasamt starfsfólk til að taka þátt og sækja hugmyndir sem nýtast í daglegu leikskólastarfi.