Meistaramót

Meistaramót

Hugarhlýja, Austurmörk 7, 810 Hveragerði Kort

sun 17. jan 2027 10:00

Bústaðu viðburðinn!

💜 MEISTARAMÓT Í HUGARHLÝJU 💜

Mín vegferð sem Reikimeistari

Dagur fyrir Reikimeistara

Hvað gerist eftir að við útskrifumst sem Reikimeistarar?

Höldum við áfram að æfa okkur, treystum við þekkingunni okkar og nýtum við það sem við höfum lært? Eða hefur Reiki kannski setið aðeins á hakanum og beðið eftir að við gefum því meiri tíma?

Mig hefur lengi langað að kalla saman alla þá Reikimeistara sem hafa útskrifast frá mér og eiga með þeim góðan dag í Hugarhlýju og mig langar til að bjóða öðrum Reikimeisturum með í hópavinnu.

Dagur þar sem við komum saman, berum saman bækur okkar, rifjum upp, æfum okkur, deilum reynslu og styrkjum tengslin.

En mig langar líka að við förum aðeins dýpra. 💜

Á Meistaramótinu ætlum við meðal annars að:

Rifja upp Reiki og vinna saman í heilun.

Skoða okkar eigin vegferð frá því við hófum Reiki-námið.

Vinna með innsæi, sjálfstraust og efasemdir sem kunna að koma upp.

Ræða ábyrgð, mörk og fagmennsku í heilunarstarfi.

Skoða hvernig við getum nýtt þekkinguna okkar betur og hvert okkur langar að stefna.

Setja okkur persónuleg markmið og finna næstu skref á Reiki-vegferðinni.

Við ætlum að gefa okkur tíma til að spjalla, hlæja, deila reynslu og njóta þess að vera saman.

Allir þátttakendur fá fallega og innihaldsríka vinnubók sem við vinnum með yfir daginn og tökum síðan með heim. Í henni eru verkefni til sjálfsskoðunar, 21 dags Reiki-áskorun, persónulegur meistaraáttaviti og ýmislegt fleira sem getur nýst áfram.

Þetta er ekki próf og enginn þarf að sanna neitt. ❤️

Það skiptir heldur engu máli hvort þú hefur unnið mikið með Reiki eftir útskrift eða lítið sem ekkert.

Þú ert velkomin/n.

Meistaragráðan er ekki endapunktur. Hún er hluti af ferðalagi sem heldur áfram svo lengi sem við viljum læra og þroskast.

Mig langar að þessi dagur verði líka upphafið að enn sterkari tengslum okkar á milli og jafnvel samfélagi Reikimeistara sem geta stutt hvert annað áfram.

Staðsetning: Hugarhlýja, Austurmörk 7, Hveragerði

Dagsetning: 17 janúar 2027 kl 10-16

💜 Verð: 15.000.-

Skráning og upplýsingar: svava@tvaerstjornur.is

Ég hlakka svo mikið til að hitta ykkur og eiga með ykkur nærandi og gefandi dag.

Með kærleika,

Svava Bjarnadóttir

Reikimeistari og kennari

Hugarhlýja – Tvær stjörnur 💜