Mannréttindamorgunn: Hvernig lyftum við röddum barna?

Mannréttindamorgunn: Hvernig lyftum við röddum barna?

Mannréttindahús ÖBÍ, Sigtún 42, 105 Reykjavík Kort

fim 19. nóv 2026 10:00

Bústaðu viðburðinn!

Góðan dag.

Verið hjartanlega velkomin á Mannréttindamorgun þann 19. nóvember kl.10:00 í Mannréttindahúsinu.

Dagur mannréttinda barna er haldinn 20. nóvember ár hvert á Íslandi og um allan heim. Í tilefni hans verður kastljósinu beint að því hvernig lyfta má röddum barna og ungmenna.

Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála, ræðir ungmennaþing sem Barnaheill - Save the Children á Íslandi hafa skipulagt að undanförnu til fá upplýsingar um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna um allt land.

Þá fer Andrés Ingi Jónsson, verkefnastjóri málsvarastarfs, yfir það hvernig skrifstofa Barnaheilla hefur stutt við öflugt starf Ungheilla - ungmennaráðs Barnaheilla.

Nýuppáhellt kaffi og ylvolgt brauð verða á boðstólum.

Við hlökkum til að sjá ykkur!