Magnús Jóhann 30 ára - Stórtónleikar í Háskólabíó
Háskólabíó | Salur 1, Hagatorg, 107 Reykjavík Kort
fim. 17.09.2026 20:00
Píanóleikarinn og tónskáldið Magnús Jóhann Ragnarsson hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi undanfarin 10 ár síðan hann lenti í þriðja sæti á Músíktilraunum. Hann hefur gefið út fjölda platna undir eigin nafni, samið kvikmyndatónlist, pródúserað plötur hjá öðru listafólki, stofnað tónlistarhátíð, unnið að sjónvarpsþáttagerð og komið fram á fjölda tónleika á ári hverju svo að nokkuð eitt sé nefnt.
Þann 17. september verður hann 30 ára og hyggst fagna afmælinu með stórtónleikum í Háskólabíói. Þá verða liðin 10 ár frá útgáfu fyrstu sólóplötu hans, Pronto.
Á tónleikunum verður mörgu af helsta samstarfsfólki Magnúsar smalað saman og leikin lög sem spanna allan feril hans. Magnús og GDRN munu leika lög af geysivinsælum dægurlagaplötum sínum og þungavigtarmenn úr djassheiminum munu láta sjá sig og flytja lög af rómuðum samstarfsplötum. Magnús mun einnig flytja ný lög og gömul einn síns liðs, vopnaður hljóðgervlum af ýmsum toga. Svo gætu óvæntir gestir knúið að dyrum.
Magnús Jóhann hefur í tvígang verið valinn tónlistarflytjandi ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum og hefur auk þess hlotið fjölda tilnefninga og viðurkenninga fyrir verk sín. Þessum viðburði ætti enginn tónlistarunnandi að missa af!
Miðasala er hafin á tix.is
Flytjendur
-
Magnús JóhannÓvenju fjölhæfur tónlistarmaður á flestum sviðum tónlistar; tónskáld, hljómborðsleikari og upptökustjóri.
-
GDRNSöngkona, þekkt fyrir jólalög og samstarf við Magnús Jóhann.
-
Skúli SverrissonTónlistarmaður sem mun koma fram með Ólöfu Arnalds.
-
Óskar Guðjónsson
Gestur kvöldsins.