Ljósanæturhlaupið 2026
Stapalaug, Dalsbraut 11, 260 Njarðvík Kort
mið. 02.09.2026 18:30
📍 Rásmark og endamark verða við Stapalaug, Dalsbraut 11, Innri-Njarðvík. Vegalengdir fyrir alla fjölskylduna 💙
👉 Skráðu þig hér: http://netskraning.is/
💚 500 kr. af hverri skráningu renna óskertar í Minningarsjóð Ölla.
Minningarsjóður Ölla styrkir börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga kost á því vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða umsjónarmanna.
🏃♀️ Þátttakendur eru hvattir til að kynna sér vel hlaupaleiðir áður en hlaupið er af stað. Hægt er að skoða kort af leiðunum í "Umræðunni" hér í viðburðinum.
Keppt er í eftirtöldum vegalengdum:
• 3,5 km
• 7 km
• 10 km
Flögutímamæling verður notuð í öllum vegalengdum.
🏊♀️ Búnings- og sturtuaðstaða verður í Stapalaug og Reykjanesbær býður öllum þátttakendum í sund að hlaupi loknu.
📅 Dagskrá og tímasetningar
• Ræsing í 10 km kl. 18:30
• Ræsing í 7 km kl. 18:35
• Ræsing í 3,5 km kl. 18:40
🏆 Verðlaunaafhending verður um kl. 19:50.
• Verðlaun verða veitt fyrir besta árangur í öllum aldursflokkum í 7 km og 10 km
• Í 3,5 km eru tveir flokkar: 15 ára og yngri og 16 ára og eldri
• Glæsileg útdráttarverðlaun verða dregin úr nöfnum allra þátttakenda
🧡 Þátttökugjald
3,5 km
• 14 ára og yngri: 1.500 kr.
• 15 ára og eldri: 2.000 kr.
7 km og 10 km
• 14 ára og yngri: 2.000 kr.
• 15 ára og eldri: 3.000 kr.
‼️ Athugið: Skráningargjald hækkar um 1.000 kr. í öllum flokkum eftir kl. 23:59 mánudaginn 31. ágúst.
✍️ Skráning
Við hvetjum alla til að tryggja sér skráningu á http://netskraning.is/ til að forðast óþarfa stress. Afhending keppnisgagna hefst kl. 17:00 á hlaupadegi.
Umsjón: Vikar Sigurjónsson – sími 899-0501
Flytjendur
-
Ljósanótt í Reykjanesbæ✨ Ljósanótt í Reykjanesbæ er menningar- og fjölskylduhátíð sem haldin er fyrstu helgina í september ✨