Listauppskera Fellaskóla | Fjölskyldudagskrá Hörpu
Harpa | Kaldalón, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
sun 23. maí 2027 13:00
Fjölskyldudagskrá Hörpu: Listauppskera Fellaskóla (fyrir 12–16 ára)
📍 Staður: Kaldalón í Hörpu
📅 Dagsetning: Sunnudagur 23. maí
🕐 Tími: Kl. 13:00
👧 Aldur: 12–16 ára
🤝 Í samstarfi við: Fellaskóla
Nemendur Fellaskóla stíga á svið í Kaldalóni og sýna afrakstur skapandi starfs vetrarins.
Í Fellaskóla er lögð rík áhersla á tónlist og skapandi skólastarf í Draumaskólanum Fellaskóla, þar sem hugmyndir, styrkleikar og sköpunarkraftur nemenda fá að njóta sín.
Tvisvar á ári eru haldnir sérstakir þemadagar þar sem nemendur vinna á fjölbreyttan og skapandi hátt út frá bókmenntum. Á uppskeruhátíðinni í Hörpu fáum við að sjá og heyra verk sem hafa orðið til á þessum dögum, meðal annars frumsamin lög og stuttmyndir eftir nemendur.
Fjölbreytt og lifandi dagskrá þar sem krakkarnir í Fellaskóla stíga sjálfir fram og deila sköpun sinni með gestum.