Listasýningar I Exhibitions I Hamraborg Festival 2026

Listasýningar I Exhibitions I Hamraborg Festival 2026

Hamraborg-Festival, Hamraborg 22, 200 Kópavogur Kort

fös. 28.08.2026 17:00

Listasýningar

Hamraborg Festival er árlegur, vikulangur fögnuður lista og samfélags í hjarta Kópavogs. Þetta árið er hátíðin haldin í sjötta sinn og stendur hún yfir dagana 28. ágúst 4. september en þá kveðjum við sumarið með líflegri dagskrá sem er yfirfull af listarsýningum, gjörningum, vinnusmiðjum, tónleikum og öðrum listviðburðum. Allir viðburðir hátíðarinnar eru ókeypis og öllum opnir.

Ár hvert sprettur list úr öllum krókum og kimum hverfisins, og býðst íbúum sem og gestum og gangandi að kanna og fagna listinni í öllum sínum myndum. Það er auðvelt að rekast á listaverk á ferðum sínum um svæðið, svo sem við hversdagslegar erindagjörðir á borð við matarinnkaup en einnig geta gestir kosið að fylgja korti af hátíðarsvæðinu og upplifa dagskrána í heild sinni. Hátíðin er sköpuð í nánu samstarfi við nærsamfélagið og mörg verkanna eru í samtali við arkítektúr, sögu eða daglegt líf á svæðinu. Í gegnum árin hefur listin dreifist um menningarhús, búðarglugga, kaffihús, skrifstofur og almenningsrými Hamraborgar, á borð við Catalinu, Gerðarsafn, EuroMarket, Polo Vape Shop og Bókasafn Kópavogs.

Drauma má nýta til þess að efla ímyndunaraflið og sjá handan þess sem blasir við. Í draumi getum við heimsótt gamlar minningar og leyft hugsanlegum framtíðum að taka á sig mynd. Draumar geta ýmist fært okkur skýrleika eða spurningar, jafnvel ófyrirséðar hugdettur. Með draumum getum við nært tilfinningar á borð við samkennd, sorg og undrun og viðhaldið tengslum við annað fólk sem og umhverfið í kringum okkur. Á sjöttu hátíð Hamraborg Festival bjóðum við listafólki, nágrönnum, fjölskyldum, sveimhugum og forvitnum ferðalöngum að taka þátt í sameiginlegu dreymi sem hringsólar og teygir anga sína í allar áttir.

Allar sýningar opna föstudaginn 28. ágúst kl. 17 og verða opnar á hefðbundnum opnunartíma sýningarstaða til og með 4. September.

Frekari upplýsingar um allar sýningar má nálgast á heimasíðu hátíðarinnar

hamraborgfestival.is

Sjáumst í Hamraborg!

Hamraborg Festival er góðfúslega styrkt af:

Kópavogsbær, Myndlistarsjóður, Landsbankinn, Barnamenningarsjóður.

Sýningar

Alex Sumarliði

Landslag í matinn

Staðsetning: Krónan.

Alicja Kubicka

týndur sokkur

Staðsetning: Bókasafn Kópavogs.

Arnar Birgisson og nemendur leikskólans Efstahjalla

Kópavogur með mínum augum

Staðsetning: Salurinn tónlistarhús.

Diljá Þorvaldsdóttir

Ævintýri

Staðsetning: Bókasafn Kópavogs.

Gréta Jónsdóttir, Heiðrún Sæmundsdóttir

Má bjóða þér sykur?

Staðsetning: Gerðarsafn.

Hekla Kollmar

Stutt Stopp

Staðsetning: Euromarket.

Kviss Búmm Bang

Hvernig líður gagnkynhneigðum?

Staðsetning: Bókasafn Kópavogs

Megan Auður

Hvernig önnumst við sprungurnar sem eftir standa?

Staðsetning: almenningsrými.

Riccardo Vailati og Ívar Ölmu

LEIKVÖLLUR SAGRA

Staðsetning: á túninu fyrir aftan Gerðarsafn

Sigurlinn Maríus Sigurðar

Samtengingar

Staðsetning: almenningsrými.

Snædís Björt Guðmundsdóttir

Hestar í Hamraborg!

Staðsetning: Catalina, Gjábakki & Te & Kaffi.

Tereza Justína Vaneková

Heima

Staðsetning: Bókasafn Kópavogs.

Thomas Pausz & Miguel Angel Crozzoli

Gagnaveröld plantna

Staðsetning: Náttúrusafn Kópavogs

Jeremy Deller

Myndbandsverkasýning

Staðsetning: Salurinn

Flytjendur