LILJA

LILJA

Austurbæjarbíó, Snorrabraut 37, 105 Reykjavík Kort

lau. 29.08.2026 20:00

LILJA (IS/NO)

Laugardagurinn 29. ágúst | Austurbæjarbíó

20:00

Kvöldpassi*

Oddrún Lilja Jónsdóttir er tónskáld og gítarleikari frá Oslo og Reykjavík sem hefur vakið athygli fyrir persónulegan og ævintýralegan hljóðheim. Hún hefur komið fram víða um heim og unnið með tónlistarfólki frá ólíkum menningarheimum.

Fyrstu plötur hennar, Marble og Mirage, hlutu frábærar viðtökur, en sú síðarnefnda var tilnefnd til norsku tónlistarverðlaunanna Spellemannsprisen. Árið 2023 samdi hún sérstakt afmælisverk fyrir Vossa Jazz og árið 2024 frumflutti hún hljóðrænt og sjónrænt verk um ritskoðun í Norsku óperunni.

Tónlist Oddrúnar sækir innblástur bæði í íslenskan og norskan menningararf, þjóðlagatónlist og nútímalegan jazz. Útkoman er leikandi, ljóðræn og utan tíma og rúms.

Oddrun Lilja Jonsdottir - gítar & söngur

Beady Belle - söngur & synth

Jo Skaansar - bassi & söngur

Erik Nylander - trommur

Laugardagurinn 29. ágúst

19:00 – Austurbær | Hljóð í ljóði - útgáfutónleikar (IS)

20:00 – Austurbær| LILJA (IS/NO)

21:00 – Austurbær |Jocelyn Mienniel & Charles Vetter (FR)

22:00 - Austurbær | hist og (IS)

Kvöldpassi kostar 8.990 kr. en við bjóðum upp á afsláttarverð, 6.990 kr., fyrir þau sem kjósa lægra verð og sérstakt stuðningsverð fyrir velunnara hátíðarinnar, 9.990 kr.

Flytjendur

  • Reykjavík Jazz Festival
    Reykjavík Jazz Festival

    25. - 30. ágúst 2026 / August 25th-30th 2026

    www.reykjavikjazz.is

  • Beady Belle
    Beady Belle

    Featuring the vocal talents of Beate S. Lech, Norwegian group Beady Belle make jazz, acid jazz, and downbeat-influenced electronic pop. Formed in Oslo in 1999 by former university music students Lech and bassist/programmer Marius Reksjø, the band also includes drummer Erik Holm. What originally began as Lech's solo debut for Jazzland Records eventually morphed into Beady Belle's 2001 debut album, Home, after Lech and Reksjø began collaborating on Lech's songs. Two years later the band released its sophomore album with Cewbeagappic. In 2005, Beady Belle dropped their third studio effort, Closer. Belvedere followed in 2008. ~ Matt Collar, Rovi