LÍKAMINN GLEYMIR ENGU

LÍKAMINN GLEYMIR ENGU

Lífsgæðasetur St. Jó, Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður Kort

mið 3. feb 2027 19:45

Bústaðu viðburðinn!

Hvað er líkaminn að reyna að segja þér?

Við erum oft svo upptekin af því að halda áfram, klára verkefnin og sinna öllu í kringum okkur að við gleymum að staldra við og hlusta á eigin líkama. Sagan okkar sest að í líkamanum okkar og getur haft mikil áhrif á líðan okkar andlega og líkamlega.

Stundum finnum við fyrir spennu, óróleika eða þreytu án þess að gefa okkur tíma til að átta okkur á því hvað við þurfum eða hvað er að angra okkur.

Líkaminn gleymir engu er fjögurra skipta námskeið þar sem við gefum okkur tíma til að hægja á, auka líkamsvitund og kynnast leiðum til að styðja við jafnvægi í taugakerfinu.

Á námskeiðinu vinnum við meðal annars með:

Öndunaræfingar sem geta hjálpað okkur að finna meiri ró.

Mjúkar Yin jógaæfingar sem gefa okkur tækifæri til að finna betur fyrir líkamanum.

Hugleiðslu og núvitund til að þjálfa okkur í að vera meira til staðar.

Einfaldar æfingar sem miða að því að sefa taugakerfið og auka tilfinningu fyrir öryggi og jafnvægi.

Þetta snýst ekki um að gera æfingarnar fullkomlega eða ná einhverjum ákveðnum árangri.

Þetta snýst um að læra að hlusta, finna og mæta okkur sjálfum af meiri mildi og veita líkamanum öryggi til þess að sleppa takinu af spennu og streitu.

4 skipti – 90 mínútur í senn

Samtals 6 klukkustundir

Verð: 31.000 kr.

Yogahúsið

Þú þarft enga fyrri reynslu og mátt mæta nákvæmlega eins og þú ert.

Gefðu þér rými til að hlusta á líkamann.