Lífeyrismál á öllum aldri - fjarkennt

Lífeyrismál á öllum aldri - fjarkennt

Í streymi, , Reykjavík Kort

þri 6. okt 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

Gagnleg fræðsla á mannamáli um uppbyggingu og töku lífeyris á Íslandi. Lögð er áhersla að þátttakendur geti valið á milli þeirra fjölmörgu valkosta sem bjóðast, svo gera megi sem mest úr hverri krónu.

Meðal þess sem rætt verður um er:

Hvernig vel ég lífeyrissjóð?

Hvernig sé ég í hvað stefnir að óbreyttu?

Á ég að skrá mig í tilgreinda séreign?

Hvernig ávaxta ég og sæki viðbótarlífeyrissparnað?

Hvaða hlutverki mun Tryggingastofnun gegna?

Hvernig geta skattar haft áhrif á ákvarðanir um uppbyggingu og úttekt lífeyris?

Hvernig byggi ég upp minn eigin lífeyrissjóð?

Hvernig tryggi ég fjárhagslegt öryggi fjölskyldu minnar?

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Björn Berg Gunnarsson, sjálfstæður fjármálaráðgjafi og fyrirlesari. Nánar upplýsingar um Björn má nálgast á www.bjornberg.is

Tími: Þriðjudagur 6. október kl. 17-19.

Staður: Fjarkennt

Verð: 19.900 kr.

Félagsfólk Verk Vest, Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur, Sameykis og Kjalar stéttarfélags, auk félagsfólks í stéttarfélögum sem eiga aðild að Iðunni, getur sótt námskeiðið sér að kostnaðarlausu.

Aðrir þátttakendur eru hvattir til að kanna rétt sinn til styrks vegna námskeiðsgjalds hjá sínu stéttarfélagi eða starfsmenntasjóði.

Flytjendur