Lesið á milli línanna
Bókasafn Kópavogs | Aðalsafn, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Kort
fim. 01.10.2026 15:00
Á fundinum 1. október tökum við fyrir bókina Hildur eftir Satu Rämö.
Fyrir aldarfjórðungi týndust tvær litlar systur í óveðri og aldrei hefur neitt til þeirra spurst. En Hildur, stóra systir þeirra, er orðin rannsóknarlögreglukona á Ísafirði og óhjákvæmilega leitar hvarf systranna oft á hugann. Lögreglan fyrir vestan er fáliðuð og fæst við margt. Þegar snjóflóð fellur á sumarhúsabyggð og Hildur og félagar hennar í lögreglunni mæta á staðinn finna þau í rústunum mann sem hefur verið myrtur – í friðsælum bænum er greinilega eitthvað einkennilegt á seyði.
Bókaklúbburinn hentar öllum hressum konum sem vilja hittast, lesa á milli línanna og spjalla um yndislestur á léttu nótunum. Lesin er ein bók á mánuði sem er svo rædd fyrsta fimmtudag í mánuði á fundum klúbbsins.
Allar konur velkomnar á meðan húsrúm leyfir. Hlökkum til að hitta ykkur!
Fylgist með í Facebook-hópnum Lesið á milli línanna | Bókasafn Kópavogs.
Hjartanlega velkomnar!