Leshringurinn Sólkringla - Aðventa
Borgarbókasafnið | Menningarhús Kringlunni, Listabraut 3, 103 Reykjavík Kort
fim 17. des 2026 17:30
Bústaðu viðburðinn!Bók desembermánaðar er í takt við árstímann, Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson. Hún byggir á sannri frásögn af eftirleit Fjalla-Bensa í desember árið 1925 sem birtist í fyrsta hefti tímaritsins Eimreiðarinnar árið 1931. Eins og segir í umfjöllun Rúv um bókina en þar er hún lesin árlega á aðventunni eins og á mörgum íslenskum heimilum. Þetta er líka það verk Gunnars sem hefur verið þýtt á hvað flest tungumál.
Aðventa kom út í íslenskri þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar árið 1939 en árið 1954 í þýðingu Gunnars sjálfs. Sú þýðing var notuð við endurútgáfu bókarinnar 2007.Hægt er að nálgast upplestur á Aðventu á vefsíðu Rúv: https://www.ruv.is/utvarp/spila/adventa/7122/
Leshringurinn Sólkringlan hittist venjulega þriðja fimmtudag í mánuði kl. 17.30-18.30 í Borgarbókasafninu Kringlunni, frá september til maí.
Dagskrá haustsins 2026 er eftirfarandi:
-17. september: Jarðnæði eftir Oddnýju Eir Ævarsdóttur
-15. október: Hægara pælt en kýlt eftir Magneu J. Matthíasdóttur
-23. nóvember: Lungu eftir Pedro Gunnlaug Garcia
-17. desember: Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson
Vefsíða viðburðar: https://borgarbokasafn.is/events/d0f229e5-229f-411b-bb77-2462cbb150b3,20261217
Umsjón og skráning:
Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | 411 6204