Leikhúskaffið er skemmtilegur viðburður fyrir öll sem hafa áhuga á leikhúsi og hefst á Borgarbókasafninu Kringlunni þar sem leikstjórinn Sara Martí Guðmundsdóttir segir frá sýningunni.
Í kjölfarið verður farið samferða yfir á Litla svið Borgarleikhússins þar sem ævintýraleg leikmyndin verður skoðuð og boðið upp á umræður og spurningar fyrir áhugasama.
Barnasýningin Pétur og kötturinn Brandur verður frumsýnd á Litla sviði Borgarleikhússins þann 16.janúar. Hjartnæm og sprenghlægileg sýning, full af tónlist, húmor og töfrum sem minna okkur á mikilvægi vináttunnar. Með hlutverk fara Vala Kristín Eiríksdóttir og Valur Freyr Einarsson.
Gestum leikhúskaffis býðst 10% afsláttur af miðaverði á sýninguna.
Hjólastólaaðgengi er á viðburðinum.
Öll eru hjartanlega velkomin!
Leikhúskaffi - Pétur og kötturinn Brandur
Borgarbókasafnið | Menningarhús Kringlunni, Listabraut 3, 103 Reykjavík Kort
þri 5. jan 2027 17:30
Bústaðu viðburðinn!Um sýninguna:
Í fallegri sveit lifir Pétur bóndi rólegu og einmana lífi - þar til allt breytist þegar Brandur, lífsglaður og talandi köttur, mætir á svæðið. Skyndilega fyllist heimilið af hlátri og ævintýrum. Pönnukökuterta, týndir lyklar, bilað hjól og brjálað naut skapa sífellt nýjar og óvæntar uppákomur. En þegar Brandur hverfur sporlaust þarf Pétur að takast á við sinn stærsta ótta og leggja af stað í spennandi leit að vini sínum.
Nánari upplýsingar veita:
Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | 411 6204
Emelía Antonsdóttir Crivello
emelia@borgarleikhus.is | 568 5500