La Dolce Vita // Ítalskir kvikmyndadagar

La Dolce Vita // Ítalskir kvikmyndadagar

Bíó Paradís Salur 2, Hverfisgata 52, 101 Reykjavík Kort

fös 13. nóv 2026 19:00

Bústaðu viðburðinn!

Ítalskir kvikmyndadagar í samstarfi við Bíó Paradís og Mekka munu sýna stórmyndina La Dolce Vita (1960) eftir kvikmyndaíkonið Federico Fellini föstudaginn 13. nóvember.

Sagan gerist í Rómarborg á árunum 1959 - 1960 og segir frá blaðamanninum og kvennabósanum Marcello Rubini.

Þegar myndin var frumsýnd vakti hún svo sterk viðbrögð Rómarbúa að það rataði í íslensk dagblöð.

Á undan mynd verða á boðstólnum ítölsk vín í boði Mekka og geta gestir þannig komið sér í alvöru ítalskt stuð.