Kyrrðarkvöld á Borgarbókasafninu Úlfarsárdal

Kyrrðarkvöld á Borgarbókasafninu Úlfarsárdal

Borgarbókasafnið | Menningarhús Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 122, 113 Reykjavík Kort

þri 24. nóv 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Verið velkomin á Kyrrðarkvöld!

Flot💧🐚

Í samstarfi við Dalslaug verður boðið upp á 30 mínútna flot í innilauginni - djúpa slökun og friðsæld í líkama, huga og sál.

Athugið að flotið er ekki leitt af flotþerapista en hugleiðsla með tónlist er spiluð í gegnum hátalara í vatninu.

Þátttakendur skrá sig í afgreiðslu Dalslaugar og gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær. Greitt er fyrir sundferðina – flotið er frítt.

Flotið fer fram í fjögur skipti og hefst tímanlega ofan í lauginni kl. 18:00 19:00, 20:00 og 21:00.

Hvert holl getur farið inn í innilaugina 10 mínútum áður til þess að ná sér í flotbúnað og koma sér fyrir.

Að loknu floti eru þátttakendur beðnir um að ganga rösklega frá búnaðinum svo næsta holl geti komið sér fyrir.

Slökun🕯️🪷

Auk flotsins verður boðið upp á leidda slökun í salnum fyrir þau sem það kjósa. Slökunin fer fram í tvö skipti og hefst tímanlega kl. 18:00 og 19:00.

Hóphljóðbað 🌙🌿

Síðast en ekki síst verður boðið upp á hóphljóðbað í salnum með náttúruþerapistanum Jacek Szeloch.

Hóphljóðbaðið hefst tímanlega kl. 20:30. Einhverjar dýnur verða á staðnum en þau sem geta eru hvött til að taka með sér eigin dýnur. Athugið að skráning er ekki nauðsynleg og öll eru velkomin svo lengi sem pláss er í salnum.

--English--

Join us for a peaceful evening!

Floating 💧🐚

In collaboration with Dalslaug swimming pool, we invite you to 30-minute floating sessions in the indoor pool – a deep relaxation experience for body, mind and soul.

Please note that the floating sessions are not led by a floatation therapist, but a guided meditation with music will be played through underwater speakers.

Registration takes place at the Dalslaug reception desk, on a first come, first served basis.

Participants pay only for pool admission — the floating session itself is free.

There will be four floating sessions starting punctually at 6:00 PM, 7:00 PM, 8:00 PM, and 9:00 PM.

Each group may enter the pool area 10 minutes before the session to collect float equipment and settle in.

At the end of each session, participants are kindly asked to return the equipment promptly to allow the next group to prepare.

Guided Relaxation 🕯️🪷

For those who prefer to stay dry, there will also be guided relaxation sessions in the hall at 6:00 PM and 7:00 PM.

Group Sound Bath 🌙🌿

Last but not least, join the Group Sound Bath led by nature therapist Jacek Szeloch.

The sound bath begins punctually at 8:30 PM. Some mats will be available on site, but guests are encouraged to bring their own if possible. Please note that no registration is required – everyone is welcome as long as space is available in the hall.