Kvöldstund með Komið gott
Austurbæjarbíó, Snorrabraut 37, 105 Reykjavík Kort
mið 2. des 2026 20:00
Grýlurnar Ólöf Skafta og Kristín Gunnars fara yfir öll brýnustu mál ársins á sjálfri aðventunni ásamt góðum gestum í Austurbæjarbíói þann 2. desember næstkomandi.
Óbreytt miðaverð í stríðinu við verðbólguna.
DAGSKRÁ: Húsið opnar kl. 18:00 Salur opnar kl. 19:00 Kvöldstund með Komið gott hefst kl. 20:00
MIÐATEGUNDIR OG VERÐ
Almannahagsmunir – 10.990 kr.
Meðvitaðir neytendur og eðlilegt fólk tyllir sér í stóra sal Austurbæjarbíós þar sem lætin fara fram.
Sérhagsmunir – 99.990 kr.
Auðmenn og fyrirmenni fá 5 sæti á hækkuðum pöllum í stóra sal Austurbæjarbíós. Kampavínsflaska og Gyllta hunangið bíða .
Um er að ræða sitjandi viðburð. Sæti á aðgöngumiðum eru ónúmeruð. Fyrstur kemur fyrstur fær. Sérhagsmunaborð verða merkt með nafni.