Krakkaklúbburinn Krummi 🎨 Listasmiðja: Innri og ytri veruleiki – hvernig dýr er ég innra með mér?
Listasafn Einars Jónssonar, Hallgrímstorg 3, 101 Reykjavík Kort
lau 24. okt 2026 14:00
Bústaðu viðburðinn!Krakkaklúbburinn Krummi í Listasafni Einars Jónssonar
Listasmiðja 🎨 Hvernig dýr er ég innra með mér?
Verkið Hvíld eftir Einar Jónsson sýnir stórt andlit sem er að hálfu hulið stuðlabergi. Við skoðum verkið vel og vandlega – því meira sem við skoðum, því meira sjáum við. Í kjölfarið búum til grímur sem hylja hálft andlitið. Grímurnar taka á sig mynd dýra og um leið veltum við fyrir okkur spurningunni: „Ef ég væri dýr innra með mér, hvaða dýr væri ég?“
Frítt fyrir alla fjölskylduna!✨
Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um sýningarnar í Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi. Með Krakkaklúbbnum Krumma vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.