Komdu að syngja
Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort
lau 31. okt 2026 13:00
Bústaðu viðburðinn!Við ætlum að taka lagið saman einn laugardag í mánuði eins og síðasta vetur. Raddböndin verða þanin og gítarstrengirnir slegnir.
Gítarleikarinn og gleðigjafinn Valli leiðir samsöng þar sem helstu perlur íslenskrar dægurlagasögu verða á boðstólum. Eitthvað gamalt og gott sem flest ættu að þekkja!
Tilvalið er að mæta með alla fjölskylduna – nú eða vinir og vinkonur að taka sig saman og mæta í söngstund. Engrar söngkunnáttu krafist, öll syngja með sínu nefi.
Það er allt í lagi þó að þú kunnir ekki textann, hann verður á skjá svo söngurinn verður leikur einn.
Komdu að syngja er á dagskrá einu sinni í mánuði fram á vor á Borgarbókasafninu Spönginni og Borgarbókasafninu Árbæ.
Öll hjartanlega velkomin!
Nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Gestsson
valgeir.gestsson@reykjavik.is | 411 6100