Í þessari skemmtilegu Hrekkjavökusmiðju mun Mada leiðbeina börnunum við að búa til sínar eigin marglaga-klippimyndir.
Klippimyndirnar eru eins og að horfa í gegnum lítinn glugga inn í annan heim. Mismunandi hlutar myndarinnar eru teiknaðir á aðskilin blöð og þeim er síðan raðað hverju fyrir aftan annað. Bilið á milli laganna skapar dýpt sem gerir myndina næstum eins og leikmynd eða mynd úr ævintýrabók! Fyrsta lagið gæti sýnt tré, annað dýr, þriðja fjöll og síðasta lagið himininn.
Börnin taka þátt í smiðjunni sjálf, án fylgdar forráðamanna. Það hjálpar þeim oft að sökkva sér betur í verkefnin, efla sjálfstæði sitt og njóta skapandi stundar með jafnöldrum sínum. Heitt kaffi verður á könnunni fyrir fullorðna og nóg að skemmtilegu lesefni til að glugga í.
Mada er portúgalskur myndskreytir, teiknimyndasöguhöfundur og stofnandi Skiss og skemmtun, listasmiðju fyrir börn, þar sem þau koma saman eftir skóla til að skapa, leika sér og þróa ímyndunaraflið sitt.
Mada hefur einstakt dálæti á dagbókarskrifum, elskar að lesa teiknimyndasögur og á sér afar óvenjulegt en árangursríkt áhugamál: að rækta avókadósteina og breyta þeim í lítil tré!
Ekkert kostar á smiðjuna en takmarkað pláss í boði. Hægt er að skrá sig hér að ofan. Smiðjan hentar 8 ára börnum og eldri.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Nánari upplýsingar veitir,
borgarbokasafn@borgarbokasafn.is
Klippimyndasmiðja
Borgarbókasafnið | Menningarhús Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 122, 113 Reykjavík Kort
mán 26. okt 2026 10:00