Kirkja í mótun - Þróun kirkjubygginga

Kirkja í mótun - Þróun kirkjubygginga

Hallgrímskirkja, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík Kort

þri 20. okt 2026 12:00

Bústaðu viðburðinn!

Kirkja í mótun

Hádegisfyrirlestrar í Hallgrímskirkju á þriðjudögum í október 2026 kl. 12:00–13:00. Léttar veitingar í boði.

Á þriðjudögum kl. 12.00–13.00 í október verður boðið upp á fræðandi fyrirlestra í Hallgrímskirkju.

Í tilefni af 40 ára vígsluafmæli kirkjunnar gefa fyrirlestrarnir að þessu sinni áheyrendum tækifæri til að kynnast kirkjubyggingunni nánar, hugmyndunum sem liggja að baki hönnunar hennar og þeirri sögu sem mótað hefur kirkjuna, umhverfi hennar og stöðu hennar sem eins helsta kennileitis Reykjavíkur.

Þriðjudaginn 20. október flytur Hilmar Björnsson arkitekt fyrirlestur undir yfirsögninni Þróun kirkjubygginga. Hilmar nam við Det Kongelige Danske Akademi for de Skönne Kunster í Kauipmannahöfn og teiknaði meðal annars Grafarvogskirkju.

Einnig gefur arkitektinn Andrés Narfi Andrésson sérstakan hátíðarfyrirlestur fimmtudaginn 22. október kl. 17.00 þar sem hann fjallar nánar um Hallgrímskirkju og sögu hennar.

Dagana 18.-25. október verður sérstök afmælisvika í tilefni af vígsluafmælinu þann 25. október sem haldið verður upp á með ýmsum viðburðum. Hátíðarfyrirlestur Andrésar Narfa er hluti af afmælisvikunni.

HALLGRÍMSKIRKJA – Í MÓTUN